| KeldunesÍ Keldunesi er gistiaðstaða í sex tveggja manna herbergjum með handlaug í gistihúsinu. Auk þess eru þrjú smáhýsi sem eru búin helstu þægindum og sér snyrtingum með sturtum og 2 bjálkahús þar sem boðið er upp á svefnpokagistingu fyrir 4 í hvoru húsi en þar þurfa gestir að koma með sína eigin svefnpoka. Bjálkahúsin eru með einfaldri eldunaraðstöðu en snyrtingar og sturta eru í þriðja bjálkahúsinu sem er staðsett á milli þeirra og er sameiginleg aðstaða fyrir gesti í svefnpokagistingu. 
 Í gistihúsinu er góð setustofa, borðstofa, eldunaraðstaða, þvottahús, baðaðstaða og heitur pottur.
 
 Á stórum svölum er grillaðstaða og gott útsýni yfir Skjálftavatn, þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.
 
 Veiðimenn Litlár eru hvergi betur staðsettir en í Keldunesi við bakka Litluár.
 
 Stutt er í margar náttúruperlur eins og Ásbyrgi, Dettifoss, Litluá, Jökulsárgljúfur, Hólmatungur, Rauðhóla og Vesturdal.
 
 Gestgjafi er Bára Siguróladóttir
 
 Keldunes II - 671 Kópasker - Sími: 465-2275 / 861-2275
 
 Netfang: keldunes@keldunes.is
 
 Keldunes er tilvalinn áningarstaður fyrir gesti sem ætla að skoða þingeyjarsýslur. Allar helstu náttúruperlur á Norð-Austurlandi eru handan við hornið, má þar nefna Ásbyrgi, Dettifoss, Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum Mývatn, auk fjölda annarra staða sem vert er að skoða.
 
 Fuglalíf á Skjálftavatni er fjölskrúðugt og áhugavert fyrir fuglaskoðara.
 
 
 
 |  |