Keldunes Í Keldunesi er gistiaðstaða í sex tveggja manna herbergjum með handlaug í gistihúsinu. Auk þess eru þrjú smáhýsi sem eru búin helstu þægindum og sér snyrtingum með sturtum.
Í gistihúsinu er góð setustofa, sem má einnig nota sem veislusal, eldunaraðstaða, þvottahús, baðaðstaða og heitur pottur.
Á stórum svölum er grillaðstaða og gott útsýni yfir Skjálftavatn, þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.
Ef óskað er býðst gestum veitingaþjónusta.
Veiðimenn Litlár eru hvergi betur staðsettir en í Keldunesi við bakka Litluár.
Stutt er í margar náttúruperlur eins og Ásbyrgi, Dettifoss, Litluá, Jökulsárgljúfur, Hólmatungur, Rauðhóla og Vesturdal.
Gestgjafi er Bára Siguróladóttir
Keldunes II - 671 Kópasker - Sími: 465-2275 / 861-2275
Netfang: keldunes@keldunes.is
Keldunes er tilvalinn áningarstaður fyrir gesti sem ætla að skoða þingeyjarsýslur. Allar helstu náttúruperlur á Norð-Austurlandi eru handan við hornið, má þar nefna Ásbyrgi, Dettifoss, Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum Mývatn, auk fjölda annarra staða sem vert er að skoða.
Fuglalíf á Skjálftavatni er fjölskrúðugt og áhugavert fyrir fuglaskoðara.
|
|